Geir og kennslustofan.

Geir litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin.
Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.
 
"Geir minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar
aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?"
"Enginn", svarar Geir.
"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?
"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Geir
Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"
 
Örstuttu seinna réttir Geir litli upp hendi.
"Já Geir"
"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"
"Endilega" segir kennslukonan.
 
"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Geir
Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað"
 
"Neeiiii" segir Geir litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar" 

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband