Lög Hins Íslenska Mýrarboltafélags.

   

1. gr.

Heiti félagsins er Hið íslenska mýrarboltafélag, (e) The Icelandic Swamp Soccer Association. Lögheimili félagsins er að Skjólsölum 14 í Kópavogi sem er jafnframt varnarþing félagsins.

 

2. gr.

Markmið félagsins er að: Að keppa ár hvert í mýrarbolta á Ísafirði og efla hina virðulegu íþrótt.

3. gr.

Til að ná þessum markmiðum hyggst félagið m.a.: fjölga félagsmönnum og fylgifiskum, þannig að félagsmenn verði að lágmarki ár hvert 50 talsins.

 

4. gr.

Aðalfund félagsins skal halda árlega, að afstöðnu keppnistímabili. Í síðasta lagi 1. október ár hvert.

 

5. gr.

Á aðalfundi skal kjósa stjórn félagins sem skal skipuð að lágmarki 4 félagsmönnum. Stjórnin skal skipuð af formanni, markaðs- og fjáröflunarfulltrúa, gjaldkera og ritara. Á aðalfundi skal leggja fram reikninga félagsins til samþykktar og tillögur að breytingum á lögum félagsins. Tillögur að breytingum á lögum félagsins skulu hafa borist formanni 2 dögum fyrir aðalfund. Til aðalfundar skal boða með minnst viku fyrirvara og skal tilkynning með tölvupósti teljast nægjanleg. Kosningarétt og kjörgengi hafa allir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið á aðalfundi. Ákvarðanir stjórnar skulu teknar einróma.

 

6. gr.

Lögum félagsins má aðeins breyta ef tillaga að breytingu hefur verið lögð fram 2 dögum fyrir aðalfund og hlotið samþykkt meirihluta félagsmanna á aðalfundi.

 

7.gr.

Maki þjálfara skal ávallt njóta stöðu heiðurskeppanda og skal hann ekki bera kostnað sem rekja má til þátttöku af móti ár hvert.  Til kostnaðar telst ekki kostnaður af gistingu, ferð á keppnisstað og fæði þá daga sem mót er haldið.

 

Samþykkt á stofnfundi Hins íslenska mýrarboltafélags að kvöldi 25. ágúst 2007.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ljóst að þið eruð snillingar og eigið ykkur engan samnburð í þessu né öðru þjóðfélagi vildi bara segja við 8 grein lagna húrr 3x húrra

kveðja Kona þjálfarans

Kona Þjálfarans (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband