Aksturslag kvenna!

Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar
og þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með

andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var
bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að
mála sig eins og ekkert sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á
roastbeefsamlokuna sem ég hélt á í vinstri hendinni. Í panikkinu við
að afstýra árekstri
við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum,
datt gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var
með á milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist
á Orminn Langa og tvíburana. Ég rak upp öskur og missti við það 
sígarettuna úr munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég 
missti af mikilvægu símtali! Hvað er að þessum helv. kellingum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Legg til, að við tökum upp Múhamedstrú og tökum HLUTA af Shari lögunum upp, þar með er þetta vandamál úr sögunni.

Konur mega ekki aka bíl í alvöru Múslimalöndum.

segið svo,að allt sé svo bölvað í múslimaríkjunum

Bjarni Kjartansson, 14.9.2007 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband